Svínakjöt?


Ég skammast mín nú eiginlega fyrir að segja frá því en ég var að leggja mér svínakjöt til munns. Ég veit að nú liggur fjallkonan einhversstaðar í leyni með kúbein og mun sjálfsagt reyna að ráða mér bana fljótlega. Megi laukur falla á hausinn á mér á óheppilegum tíma á ævi minni.

Það verður nú samt að viðurkennast að þetta var ekki svo slæmt. Kjötsneiðar fyrir alla fjölskylduna á 900 kr. Nokkrar gufusoðnar kartöflur, köld sósa úr sýrðum rjóma með hvítlauk og kryddum og ferskt salad. Þetta hefur verið máltíð á ca. 300 kr/mann. Ekki svo slæmt á krepputímum. Byrjaði á því að sinna brengluðum þörfum mínum með því að lemja kjötið með hamri, kryddaði það með svínakjötskryddi, season all, svörtum pipar og ferskri steinselju. Skelltum þessu á pönnu og kláruðum steikinguna með lokið á til að fullelda þetta örugglega.

Annar er ég bara góður. Þó er ég með smá sár í gómnum, stíflaða nös og mætti skulda minni pening. En það er ekki hægt að biðja um allt.

Kveðja, Bjarni

Ps. Myndina fékk ég upp þegar ég gúgglaði = "svínakjöt + Þórólfur Gíslason". Kjötið keypti ég að sjálfsögðu í Kaupfélaginu og Þórólfur er jú kaupfélagsstjóri mikil ósköp.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap