Karlakórar

Eins og ég gat um hér í fyrri pósti, þá fór ég á karlakóratónleika um síðustu helgi. Um var að ræða samsöngstónleika Karlakórsins Heimis sem eru Skagfirðingar eins og flestir vita og Karlakórs Reykjavíkur sem fyrir einhverja tilviljun koma frá Reykjavík. Gjörningurinn fór fram í Miðgarði sem nú hefur verið uppgerður og réttnefndur menningarmiðstöð Skagafjarðar.

Það er óhætt að segja að ég hafi farið á tónleikana með miklar væntingar. Það er ekki á hverjum degi sem manni gefst tækifæri á að hlusta á 12 tonn af spiki og kjöti þenja sver raddböndin þar til testósterónið úðast yfir fremstu bekkina.

Ég verð reyndar að viðurkenna að ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með Karlakórinn Heimi því að eftir vandlega talningu þá komst ég að því að aðeins 6 sköllóttir karlmenn syngja með kórnum. Í Karlakór Reykjavíkur voru 6 sköllóttir bara í efstu röðinni. Það er ljóst að þetta er nokkuð undir stöðlum sem segja jú að tala sköllóttra megi alls ekki fara undir 4 per/röð í fullskipuðum kór. Allavega þeim sem á að taka mark á.

En jæja. Heimismenn byrjuðu og sungu af miklum krafti. Reyndar voru þeir ekki nægilega vel innstilltir í fyrsta lagi en náðu sér svo á strik með miklum bravör. Einsöng framdi maður sem mig minnir að heiti Þorgeir, prýðisboli og belgmikill, eigi sköllóttur en samt nokkuð kraftmikill og sannfærandi. Singur ávallt Bikarinn vel og Nessun Dorma ekki síður.

Karlakór Reykjavíkur kom á óvart. Hrikalega vel þjálfaðar skepnur sem ganga eins og vel smurðar vélar, allir í takt. Raddanir fram úr hófi vel heppnaðar og spjátrungslegur stjórnandinn ljómandi skemmtilegur þegar á reyndi. Einsöngvararnir 2 ungir piltar og hinn 22 ára gamli Skagfirðingur Árni Geir Sigurbjörnsson, hárprúður með ljósa lokka, stal algerlega senunni enda að næra heimahagana með sínum ljúfu tónum á meðan máninn baðaði fannir Glóðafeykis gullslegnum vonarbjarma nýrra tíma.

Anywho, ég mæli með að þið farið og sjáið þessa kóra syngja saman nú um helgina í Reykjavík ef þið eigið þess kost.

Fuck the system, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap