Hagsmunasamtök

Ég var að enda við að skrá mig í samtök. Fyrst fór ég inn á heimilin.is og skráði mig í Hagsmunasamtök heimilanna. Því næst fór ég inn á gandri.com og skráði mig í hagsmunasamtök lánþega. Þetta eru góð og gegn samtök sem af mikilli hugsjón berjast gegn óréttlætinu sem heimilin í landinu og skuldarar þurfa að búa við.

Það er með ólíkindum að ekki fleiri Íslendingar séu skráðir í þessi samtök. Flest skuldum við jú peninga. Ég vilj hvetja alla til að fara inn á þessa vefi og skrá sig, það kostar jú ekki neitt.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap