Frat

Verð að lýsa yfir frati á þetta "eldgos" sem var að hefjast. Ef maður vissi ekki betur þá héldi maður að þeir hjá sjónvarpinu hefðu búið til þessar fréttamyndir með hvítum kartonpappa og eldspýtum. Það er til mikils fyrir heimamenn undir jökli að hafa verið með skítinn í brókunum síðan 1994 fyrir þetta smá fruss. Þetta er eins og að fá smá forleik og vera svo sparkað úr rúminu. Hvar eru flóðin, hvar eru sprengingarnar, hvar er öskufallið og hvar eru líkin?

Nei þetta er ömurlegt og kemst inn á topp 5 listann hjá mér yfir lélegustu eldgos jarðsögunnar.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

fofofo sagði…
vildi bara láta þig vita að ég er búinn að gefa fiskunum á síðunni þinni í dag. Ég tek undir að þetta eldgos er algjört frat og það hefði verið nær að þagga þetta niður í stað þess að verða aðhlátursefni umheimsins enn einu sinni.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap