Fiskibollur

Við Guðrún tókum okkur til í gær og steiktum óvart ca. 100 fiskibollur. Ástæðan fyrir því að ég segi óvart er vegna þess að þegar ég tók úr frysti á sunnudaginn lagði ég poka með 3,3 kg. af nýjum þorskflökum, veiddum af sjálfum mér að sjálfsögðu, á gólfið og þau þiðnuðu. Því þurftum við að redda þessu og lausnin var fiskibollur. Uppskriftina tókum við úr gamalli kennslubók í því hvernig eigi að vera alvöru kona. Hér á eftir fylgir einföld uppskrift.

400-500 gr ýsa, þorskur eða ufsi (helst ferskt)
2 tsk salt
2,5 mtsk hveiti
1,5 mtsk kartöflumjöl
2,5-3 dsl mjólk
1-2 laukar (2 er of mikið fyrir minn smekk)
1/8 tsk hvítur pipar
1 egg (má sleppa)
125 - 150 gr smjörlíki ef á að steikja. Mér finnst það reyndar líka vel í lagt.

Nú jæja allavega. Þurrefni hrært vel saman og eggjum og mjólk blandað rólega saman þar til verður að soppu. Hrært samanvið fiskinn og laukinn. Við söxuðum laukinn bara og bættum í en kannski má hakka hann með fiskinum? Veit ekki hvort er betra. Best að láta þetta jafna sig í smá stund og stífna áður en maður fer að steikja eins og andskotinn sé á hælunum á manni. Eftir mismunandi útfærslur og bollaleggingar á tæknilegum nótum fundum við út að best væri að taka smá slettu af fiskfarsi í lófann, móta bollur og klappa þær með hveiti. Síðan bara að steikja frá sér allt vit og setja í frystipoka.

Úr þessum 3,3 kg af þorskflökum (sem Guðrún snyrti af fagmennsku) fengum við um 7 máltíðir fyrir okkur familíuna, ca. 10-16 bollur í poka (fór eftir bollustærð). Síðan étur maður þetta með brúnni sósu, Býldudalsgrænum baunum og rababarasultu og glasi af mjólk. Snilld.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Halldór sagði…
ERtu orðinn snarrúglaður... það borðar enginn heilvita maður brúna sósu og rabbarbarasultu með fiskibollum. Bleika sósu og laukfeiti er eina vitið.
Nafnlaus sagði…
Þið eruð auðvitað "alvöru konur" þú og Guðrún.
Kv. Sigga Júlla
Bjarni sagði…
Veit ekki með kvenhlutverkið hjá mér:-0

Halldór, það Á að éta brúna sósu með fiskibollum og hananú. Ég hef aldrei á ævinni heyrt þig draga brúna sósu í efa og er hneykslaður.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap