Kappleikjaæsingur
Það er orðið svolítið síðan að ég fór að verða ónæmur fyrir slöku gengi íslenska landsliðsins í handbolta. Eða þ.e, ég ber tilfinningar mínar ekki á torg á meðan leik stendur. Þessu er ólíkt farið með suma aðra á heimilinu og er ég þá að tala um Guðrúnu.
Þegar strákarnir "okkar" hefja leik rennur á hana eitthvað æði og er hún yfirleitt orðin óð frá því að boltinn liggur fyrst í netinu. Þá skiptir ekki máli hvort liðið skoraði. Ég sit sem steinrunninn og drengirnir leita skjóls inni í herbergjum sínum en hún lætur móðinn mása með tilheyrandi ópum og handapati. Í gær var ég ekki heima til að fylgjast með handboltanum og hafði nokkrar áhyggjur af innastokksmunum og börnunum. Ég tók nú samt áhættuna á því að bregða mér af bæ. Þegar heim var komið og við settumst við matarborðið fór ég að spyrja drengina hvernig móðir þeirra hafði hagað sér yfir leiknum (eins og allir vita þá tapaði Ísland leiknum með jafntefli). Brynjar vildi meina að það ætti að sekta hana í hvert skipti sem hún blótaði en Daníel fullyrti að hún hefði sagst ætla að drepa sig!!!
Ég hef nú trú á því að drengurinn hafi eitthvað misskilið móður sína en það er ljóst að ég mun vera heima á laugardaginn þegar strákarnir hennar eiga næsta leik svona til öryggis.
Góða helgi, Bjarni

Ummæli
Annars gaman að heyra að lífið gangi sinn vana gang hjá ykkur. Eitthvað breytist nú samfélagið lítið hérna í noregi, stóð samt sjálfan mig að því að vera að góna á skíðahlaup í sjónvarpinu í morgun, þannig að líklegast breytist það til verri vegar.
Kveðja
Ragnar Sigurdsson
Kveðja, Bjarni
Ragnar