Styrjöldin að hefjast!
Jæja þá er kominn sá tími sem maður setur legghlífar á sköflungana, vatn í flösku, skot í vasa og heldur til fjalla. Setur sig í geðveikisstellingar, morðsvipur á smettið og svo eltir maður litla hvíta fugla sem ropa. Best að þetta fari fram í snjóleysi svo þær eigi ekki breik. Ég er nú eitthvað óvenju lítið stefndur fyrir þetta í augnablikinu og er eiginlega bara nóg um öll lætin í kringum þetta. Ætla nú samt heim í Mývó um helgina og athuga hvort einhverjir góðviljaðir landeigendur sjái aumur á stráknum og leyfi honum að ná sér í jólamatinn. Annars er verið að fara að vinna í kjöti heima í Brekku og maður ætti því að hafa eitthvað að gera. Minnir mig á það, ég þarf að kaupa sperðlagerðarefni á leiðinni heim. Hvað heitir þetta annars? Bjúgnaplast, bjúgnahulstur, sperðla-limhulsur, sperðlasmokkar?
Sá að búið er að stofna einhvern stuðningsklúbb fyrir séra Gunnar á Selfossi á snjáldurskruddunni og eru alls 9 búnir að skrá sig. Áfram krakkar, sýnum samstöðu!!!!
Freysteinn gamli sagði alltaf við mig að ég ætti að verða prestur enda um þægilega innivinnu að ræða og ótakmörkuð fríðindi. Gott kaup, frítt hús, lítil sem engin vinna og svo getur maður barnað konur upp um allar sveitir og þarf ekki einu sinni að gangast við króunum.
Nú hefur líka komið í ljós að hægt er að brjóta af sér starfi (t.d með því að kássast upp á fermingarstelpur) og fá fyrir vikið 30.000.000kr. svo maður hafi það nú örugglega gott í ellinni. Maður þarf ekki einu sinni að skila tímum. Djöfulls snilld!
Ég hef nú hingað til verið dús við að skattpeningar mínir fari í að borga þessum andans mönnum laun svo þeir geti pússað okkur saman á tillidögum og sparkað okkur öfugum ofaní holuna í lok dags, enda um skemmtilegar hefðir að ræða. Þetta er svona eins og jólasveinninn, grýla og leppalúði og tilvist framsóknarflokksins. Það væri bara of sárt að sjá á eftir þessum hefðum. En nú er þetta að verða komið gott. Aðskilnað ríkis og kirkju? Hljómar alltaf betur og betur.
Góða helgi, Bjarni
Ummæli
Sigga Júlla