Menningar og áthelgi á enda
Jæja þá er þessi mikla helgi menningar og listisemda holds og matar á enda. Púff, veit eiginlega ekki hvað gerðist en ég hef þyngst töluvert. Á föstudaginn fórum við á leiksýningu í Freyvangsleikhúsið, Memento Mori, átum Brynjuís og fórum heim. Mér fannst sýningin ekkert spes en Guðrún var ánægð. Ísinn var góður.
Á laugardag steikti ég folaldalund par exelenciÓ... bravó bravó. Þvílíkt kjöt, þvílík meirni.... íha íha og svo fórum við á tónleika. Frábærir tónleikar til styrktar útlendingum, eða frekar til kynningar og til að efla andann sjáiði til. Minnka fordóma. Fjölþjóðaveisla með útlendu smakki og seiðandi tónum. Mjög gott.
Þetta var rómó helgi þar sem við höfum verið saman í ár. Fleiri höfðu það rómó. Gripum köttinn undir bíl með svörtum högna. Eins gott að litla kvikindið sé ekki bomm því þá er bara strigapoki og bíltúr út að Héraðsvatnabrú. Bless bless og koss frá Ósmann.
Sá inni á fésinu hjá vinkonu minni gott skopatriði. Það sem að þið hélduð að væri stæði fyrir fatlaða, þ.e merki með manni í hjólastól á bílastæðinu, er í raun stæðið hans Chuck Norris og þýðir að hann mun lama ykkur ef þið leggið þar.
Jæja ég er á hroðalegri hraðferð
Kveðja, Bjarni
Ummæli
Til lukku með ársáfangann;)
Kv. Sigga Júlla