Tómstundaiðja fjölskyldunnar
Nú er ég á góðri leið með að kristna alla fjölskylduna í golfið. Drengirnir, sem reyndar hafa verið á golfnámskeiði í nokkurn tíma, hafa nú farið með mér 2var á völlinn á tveimur dögum. Þeir eru bara nokkuð fljótir að ná þessu, enda ég snillingur í að vinna með börnum svo ég dragi nú ekkert undan. Ég er búinn að gera allt eftir bókinni, kaupa alltof stórar kylfur fyrir þá (gott fyrir vöðvana á krökkum)og þeir eru held ég farnir að átta sig á því að til að fá verðlaunapeninga, sem er jú það eina sem skiptir máli, kostar það blóð svita og tár.
Annars er eitthvað drama í gangi hérna núna, verið að reyna að koma drengjunum í sturtu svo ég slít þessu strax. Verð að vinna þessa viku eitthvað og svo kannski frí og eitthvað. Var að borða hakk.
Kveðja, Bjarni með mikið fax

Ummæli