MMMMMMM

Dagarnir þjóta nú hjá á ógnarhraða og áður en maður veit af verður maður einhverstaðar norpandi með sultardropa á nefinu og pungsig. Maður fékk hálfgerða kvíðadrullu þegar maður heyrði veðurspána í gær en nú eru vindlingarnir eitthvað farnir að draga í land með þetta allt saman og manni sýnist þetta ekki muni verða svo viðbjóðslegt. Við ætlum samt að flýja norðurlandið og fara í kósí fjölskylduferð í uppsveitir skógræktar, hraunfláka og sanda í Rángárvallarsýslu. Þar ætla ég að koma að máli við bændur og búalið og láta mitt andlega stórviðri leika um svæðið. Koma með ferska vinda inn í þetta staðnaða samfélag.

Læt í mér heyra þegar ég kem til baka.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap