Ferðalagi lokið

Jæja þá erum við komin til baka úr alveg hreint ágætu ferðalagi. Keyrðum á Suðurlandið á fimmtudagsmorgun og vorum í bústaðnum hans Jens frænda fram á sunnudag. Margt var brallað, farið í sund, spilað golf og að sjálfsögðu étið óhemju magn af einhverju ljúffengu rusli. Ætla hér að fara stuttlega yfir ferðasöguna:

Dagur 1:

Húnavatnssýsla: Keyrt og keyrt og keyrt Vatnsnesið til að skoða Borgarvirki. Forsögulegt virki þar sem eitthvað gerðist í gamla daga. Sögum ber ekki saman en slátur kemur við sögu. Veður var skítleiðinlegt en staðurinn flottur og ágætis skilti með upplýsingum. Keyrðum svo fyrir nesið fram hjá fullt af selaskoðunarstöðum sem við nenntum ekki að stoppa við vegna veðurs. Átum nesti við Illugastaði, keyrðum hratt í gegnum Hvammstanga sem leit svo sem ágætlega út og forðuðum okkur suður yfir heiðar.



Borgafjörður: Komum við á Hamri í Borgarfirði til að ná í golfbækling. Spilaði þarna um daginn og var það snilld þrátt fyrir brunnar brautir. Þarna fást hrikalega góðar samlokur með kartöflubátum.





Mosó: Drengirnir búnir að tala um KFC allan liðlangan daginn. Daníel sagði að ef það væri komið kvöld þegar við kæmum suður, þá væri ótrúlega kósí að borða á KFC í Hafnfirði. Gripum tækifærið og slepptum þeim á beit á fyrsta KFC sem við sáum. Frekar slakur Zinger borgari með hræðilegum frönskum. Djö.... .. ætla aldrei að éta þarna aftur.

Komum okkur svo vel fyrir í bústaðnum hans Jens um kvöldið og höfðum það nice eftir langan dag. Ætla að fara á handahlaupum yfir það sem við skoðuðum það sem eftir var ferðar:



Sundlaugin á Hvolfsvelli: Fín laug og hægt að fá ókeypis kaffi á bakkanum. Rennibrautin ágæt en frekar hæg. Maður nær ágætis hraða ef maður lætur bara herðablöðin og hælana snerta.

Heklusetur og ferðaþjónusta á Leirubakka: Fórum inn á Heklusetur og keyptum kaffi á brúsa og sjóðandi vatn. Leyfðum strákunum að skoða sýninguna og settumst út á meðan. Ætluðum í einhverja náttúrulaug sem var auglýst í bæklingum en hún var lokuð fyrir alla nema tjaldsvæðagesti. Ekki einu sinni hægt að borga inn? Gaman að keyra langar leiðir og komast að þessu.

Golfvöllurinn á Þverá, Hellishólum: Metnaðarfullt starf í gangi þarna. Fólk búið að kaupa þetta og er að byggja upp mikið golfsvæði og allskonar húllumhæ fyrir hjólhýsaperra jamt sem annað fólk sem villist þarna inn. Spiluðum 9 holu par 3 völl sem er fínn fyrir byrjendur og krakka. Veður gott en hefði mátt vera ókeypis fyrir krakka á völlinn. Líka hægt að spila á stórum velli.

Sundlaugin á Hellu: Flott laug með 2 góðum rennibrautum og fullt af pottum. Tartanhellur við laugina og smooth að ganga um. Topp laug.

Stöng í Þjórsárdal og gjáin: Fórum fyrst upp að þjóðveldisbænum sem var byggður eftir þeim upprunalega. Átum nesti á steinborði en týmdum ekki að borga inn 600 á mann til að skoða þetta feik. Keyrðum upp að Stöng originale og fórum inn í yfirbyggðu rústirnar og var það mun meira vit. Daníel fékk í magann og þurrfti að hægja sér bak við runna. Honum fannst þetta hræðileg lífsreynsla og náði sér ekki strax aftur, var bara alveg ómögulegur. Gengum upp í gjánna og var það alveg snilldar svæði. Lentum í ýmsum ævintýrum, hellaskoðunum og óðum ískalda á (sjá myndaalbúm hér til hliðar, sumarfrí í Heklubyggð). Frábær staður.

KFC á Selfossi???: Hvernig í fjandanum lenti ég hérna inni aftur. Keypti mér núna gamla "góða" kjúklinginn og var hann vaðandi í fitu en nokkuð góður. Franskarnar eins og veiddar upp úr drullupolli, ojj. Ætla aldrei að éta þarna aftur.

Síðan var bara ekið sem leið lá beint heim. Endilega kíkið á myndirnar hér til hliðar. Að sjálfsögðu varð ég að setja inn golfmyndir af okkur öllum, hvað annað.

Bestu kveðjur, Bjarni

Ummæli

Halldór sagði…
Ekki tala illa um kfc, 0 grömm trans fita.
Bjarni sagði…
Jamm þetta sagði Daníel mér líka á leiðinni, með allar auglýsingar á hreinu. Langar nú til að fitusýrugreina þetta....
Nafnlaus sagði…
Algjörlega sammála þér, Höfðingi Standandi Ullarsokkur. Það á að vera bannað f fólk með háa greindarvísitölu og háskólamenntun að éta á svona sóðabúllu. Skítt með transfituna, það er svo mikið af annarri fitu og viðbjóði í þessu að mar þarf að drekka líter af vélahreinsi til að skola þessu út...

kv OfurHerbinn
Halldór sagði…
Vélarhreinsir er líka mjög góður, skemmir ekki lifur og lungu eins og önnur fæðubótaefni;)
Nafnlaus sagði…
Mar lætur þá bara skipta...nýkominn úr nýrnaskiptum og bað þá bara að skipta út lungum og lifur líka...helst fá frá e-m duglegum kínamanni, iðnaðurinn blómstrar víst þarna austurfrá þessa dagana...
kv #6

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap