Beitukóngur og golf

Góða kvöldið

Enn einu sinni veit ég ekkert hvað ég er að vilja hér inn, lítið títt, allt við það sama. Samt drullublíða í dag sem er góð tilbreyting hér á bæ. Þetta er ekki eins og Mývatnssveitin þar sem lömbin sjálfgrillast í móunum og vatnið ilvolgt í sprænunum, sei sei. Gaman er í vinnunni sem er að sjálfsögðu jákvætt og vorum við að hefja tilraunaveiðar á beitukóngi. Drögum trossur á 2 daga fresti og hefur aflinn verið svona upp og ofan. Er einmitt að fara í eina svona ferð eldsnemma í fyrramálið. Ætla að taka með mér sýnishorn heim og prófa að elda þetta við tækifæri. Læt þá inn uppskrift.

Svo skráði ég mig í 4 daga meistaramót í golfklúbbnum hérna í dag þannig búast má við miklum geðsveiflum, jafnvel geðshræringarköstum næstu daga. Guðrún á sjálfsagt eftir að sparka mér út á næstu dögum. Eða eins og hún orðaði það sjálf: "Ætli ég geri það ekki bara eftir golfmótið, þá verðurðu heima".

Spilaði eins og engill fyrstu 3 holurnar á þessu móti -eins og á meistarmóti GA í fyrra- en svo fór allt í ruglið, því miður. Fékk svo fugl á 3. síðustu holunni (það er einn undir par fyrir þá sem ekki vita (sem er einu höggi færra en kylfingur með 0 í forgjöf á að fara á) (ég er með 26,3)(þetta er mjög gott hjá mér)(vei))) en gerði mér svo lítið fyrir og fór seinustu 2 holurnar á 18 höggum. Púff.... Jæja leiðin getur aðeins legið uppávið, og ég er ekki í síðasta sæti á þessu móti. Læt að sjálfsögðu vita hvernig gengur á morgun.

Jæja hafið það gott, Bjarni

Ummæli

Halldór sagði…
Ættir nú bara að hætta þessu held ég.
Bjarni sagði…
Æi það er ekki hægt. Ég hef reyndar ekki reynt það, en það er ekki hægt.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap