Skipstrand hugans
Skip strandar og sekkur svo eins og steinn við Sandgerði. Mannleg mistök ollu slysinu var sagt í fréttum. Hvernig eru ómannleg mistök? Hvað eru mistök? Er hægt að sökkva skipi með ómannlegum mistökum? Veltið þessu aðeins fyrir ykkur. Getur dýr t.d gert mistök? Fyrirsögn: "Kind gerir mistök, bíll út í skurð". Hundur bítur mann sem fær sýkingu í puttann, skelfileg mistök. Hamstur gerir mistök og dettur af borði, líðan eftir atvikum góð. Geta dýr aðeins gert mistök ef það bitnar á þeim sjálfum (kannski hamsturinn)? Antilópa stekkur til hægri en ekki vinstri og ljónið nær henni. Voru þetta mistök eða hefði ljónið alltaf náð henni, sama í hvaða átt hún hefði hlaupið, eða veit hún bara ekki betur og gerði þar af leiðandi ekki mistök? Þarf maður að flokkast sem vitsmunavera til að gera mistök? Voru vitsmunaverur sem ráku bankana? Ég segi það aftur, pælið í þessu.
Ég er hundleiður á því að vera alltaf að japla á því hvað ég hafi ekkert að skrifa um og bla bla. Satt best að segja hef ég sjaldan haft frá meiru að segja, en aldrei hef ég haft minni tíma til að skrifa. Maður notar tímann í annað þessa daga. Bloggið verður því væntanlega dauft í sumar en ég hendi kannski einhverju inn ef mér dettur það í hug, t.d myndum ef maður gerir eitthvað jibbýjei.
Þarf að fara að sofa því ég er að fara að keppa í róðri á sexæringi á sjómannadagshátið á Skagaströnd á morgun og hlakka mikið til. Ef einhver hefði sagt þetta við mig fyrir 2 árum hefði ég sagt honum að drullast út af skrifstofunni minni. Tímarnir breytast og örnefnin með.
Heil und strásveil mine libre kinder, Bjarni

Ummæli
kv,bj