Sjóferðir, gestagangur og norð- austan kuldaboli
Jæja góðan daginn börnin góð. Margt hefur á daga mína drifið í sveitinni og af nógu að taka á öllum vígstöðvum. Vann mikið í síðustu viku og það er svo sem útlit fyrir að það verði svipað á næstunni. Nú sér fyrir endan á grásleppuvertíðinni en önnur spennandi verkefni taka við, s.s tilraunaveiðar á beitukóngi, áframhaldandi selarannsóknir, þörungaræktun og vöktunarverkefni fyrir kræklingarækt. Einnig ætlum við að reyna að finna einhverja hörpuskel í flóanum en það varð hrun í stofninum á svipuðum tíma og í Breiðafirðinum. Við munum taka staðlaðar botnsköfur með plóg og gera greiningar á innihaldi og afla. Síðan er hægt að taka tog á sömu stöðum í framtíðinni og fylgjast með breytingum. Sem sagt, nóg að gera í vinnunni og mjög spennandi verkefni framundan.
Ef þetta plan klikkar þá erum við Halldór yfirmaður með plan og viðskiptahugmynd. Ég get ekki rætt þetta í kjölinn, en þetta snýr að heyskap í Flatey á Skjálfanda, útflutning á töðu á Japansmarkað og smíði á garðhúsgögnum (meðan hey þorna).
Skarphéðinn og Rakel kíktu á okkur í gær og var það kærkomin heimsókn þó stoppið hafi verið stutt. Ég og Skarpi kíktum í golf en Guðrún og Rakel kíktu á Siggu vinkonu sína á Hólum á meðan. Þær nýttu víst tíman vel og gerðu óspart gys af okkur saklausum karlpeningnum. Þeim verður ekki sleppt eftirlitslausum úr húsi aftur. Annars var veður svo leiðinlegt á golfvellinum að eftir 7 holur rétt komumst við í bílinn við illan leik, krókloppnir með sultardropa á snjáldrinu.
Ólafía, samstarfskona mín hjá BioPol, er afar dugleg að hafa myndavél með í vinnuferðir og ætla ég að nýta mér það núna. Hún tók myndir í 2 daga gráslepputúr sem við fórum á Strandirnar í síðustu viku. Veður var ótrúlegt, náttúran öskraði á mann og maður er í hálfgerðri leiðslu þegar heim er komið úr slíkum túr. Ekki skemmdi fyrir að vera á gömlum trébát með kámínu, kojum, nógu af kaffi og spikmeti, s.s hrossakjöti hinu mesta og besta, feitsmurðum rúgbrauðssneiðum með feitu hangiketi og spikkæfu. Fita fita fita fita.
Hafi Ólafía þökk fyrir myndirnar.
Dagrún ST 1184 er 25,5 brúttótonna eikarbátur, smíðarur á Skagaströnd 1971 (Mynd, skip.is)
Séð heim að Djúpuvík á Ströndum. Þar gistum við eina nótt í túrnum.
Þarna vorum við búin að merkja og fórum að hjálpa til á dekki
Lýður er eigandi og skipstjóri á Dagrúninni
Danni, strákur sem vinnur hjá þeim feðgum sem róa á Dagrúnu
Uppáhalds fiskurinn minn í heiminum
Horft inn Noruðurfjörð á Ströndum, Drangajökull sést vel
Eiríkur, sonur Lýðs

Ummæli