Matur
Kæri Halldór.
Ég vil biðja þig afsökunar á meintu svínakjötsáti mínu og minna hér í Skagafirði. Það er rétt hjá þér, þetta eru óhrein og sveitt dýr sem éta hvað sem er, jafnvel eigin saur. Maturinn bragðaðist bara svo hrikalega vel að ég er viss um að ég muni leggja mér fleiri grísalundir til kjafts þetta sumarið. Ég vil benda lesendum mínum á þessa uppskrift hér að neðan, þetta var syndsamlega gott. Með þessu snæddum við sætar kartöflur og raðulauk í ofni, hanterað með hvítlauk, olíu, maldonsalti, svörtum pipar og fersku timijan úr matjurtarglugganum (super gay). Baka við 180°C í ca. 45 mín og gott að smjörsteikja spínat með salti (fara varlega með saltið þar sem spínatið skreppur saman við steikingu og dregur í sig saltið, bitur reynsla) og svörtum pipar.
Jæja, nú er ég að hugsa um að fara úr að ofan og kurla bíseppana og drekka lýsi. Drekka svo hrátt svartfuglsegg og fara út að kíkja á vélina í bílnum með kaffibolla og baggatello-vindil. Leggjast svo með svarta putta til svefns, pungsveittur.
Góða nótt, Bjarni

Ummæli