Áhugaverðar samræður og sveitasæla
Það hefur margt á daga okkar drifið hérna fyrir vestan og ekki yfir neinu að kvarta. Nema kannski veðrinu í dag sem nú er orðið ágætt og var svo sem aldrei svo slæmt.
Ætli megi ekki segja núna að maður sé formlega fluttur inn hjá Guðrúnu og drengjunum, búinn að flytja það dót sem manni finnst vænst um (utan skotvopna) og festa dádýrshorn á stofuvegg. Fórum í sveitina um helgina og ég gekk frá íbúðinni í Gamla húsi og hreinsaði það út sem ég held að komi að gagni í Skagafirði s.s vasahníf, límband, baggabönd, gæsaflautur og framsóknarnælu.
Drengirnir kunnu sveitalífinu ágætlega og gengu í flest verk í fjárhúsunum heima í Brekku. Daníel var búinn að draga lamb úr rollu eftir aðeins 20 mínútna dvöl í fjárhúsunum, fannst það reyndar frekar ógeðslegt en lét sig hafa það. Gekk svo um og fylgdist með hvort ekki væru fleiri að fara að bera, bar vatnsfötur, skrúfaði fyrir krana og tíndi undan hænunum. Þau egg liggja núna hérna heima og búið að blása úr þeim. Mikill dugnaður.
Þegar við komum heim í Brekku á laugardagskvöldið beið eftir okkur indælis matur og var það í fyrsta skipti sem drengirnir hittu mína famelíu. Þegar flestir höfðu lokið við að snæða og voru farnir frá borðum, nema ég, Daníel, Egill og Guðrún, sagði Daníel upp úr þurru: "Það er strákur í skólanum sem er hommi og hann skammast sín ekkert fyrir það". Nú, sögðum við. "Já hann heitir Palli og er skotinn í Gunna, og Gunni er skotinn í honum líka, þeir skammast sín ekkert fyrir það!". Við vorum farin að eiga eitthvað erfitt með okkur og mér datt ekkert í hug nema að spyrja bara hvað þeir þeir væru gamlir. "Þeir eru sex ára".
Þegar við svo komum á Krókinn aftur í gærkvöldi, voru piltarnir alveg með það á hreinu, að þeir þyrftu að fara í fjárhúsafötunum í skólann daginn eftir, fannst það sína mikla karlmennsku (tóku sér það orð í munn sjálfir). Brynjar sagði: "Ef ég fer í fjárhúsafötunum í skólann á morgunn þá verð ég mesti karlmaðurinn í fyrsta bekk". En ekki hvað, þetta líkar mér. Það var reyndar ekki alveg jafn karlmannlegt í morgun þegar Daníel fór að grenja yfir því að það var fjárhúsalykt af jakkanum hans Brynjars en ekki hans.
Jæja þetta er orðið nóg af þvaðri, hafið það gott.
Kveðja, Bjarni
Ps. Setti inn örfáar myndir í nýtt albúm.
Þegar við komum
Ummæli
Kveðja, Bjarni