Drullubað
Mig langar að stofna drullupoll. Allavega ef hægt er að rukka fólk um 3200 krónur fyrir að baða sig í honum. Á síðasta ári fóru 407.000 manns í saurgerlabað í Bláa Lóninu og borguðu fyrir það 20 Evrur. Íslendingar þurfa að borga litlar 3200 krónur eins og staðan er í dag. Síðan er hægt að borga starfsfólkinu í innlendum gjaldeyri. Brilliant! Þar sem þetta blessaða bankahrun reið yfir okkur og gengið hefur verið álíka stöðugt og þyngdin á Gauja litla ætla ég nú ekkert að reyna að reikna út hagnaðinn en þetta hlýtur að vera ógeðslega fínt uppgjör.
Ekki veit ég hvað varð af hugmyndum sem skellt var fram á sínum tíma (ég man ekki af hverjum), sem snéru að því að flytja inn túrista á vegum ríkissins. Þar á ég við, að ríkið styrki flugfélögin 2 þannig að þau geti boðið upp á ókeypis ferðir til Íslands í einhverju magni. Hægt er að setja einhverja lágmarksdvöl á þennan pakka og reyna að blóðmjólka þetta pakk. Senda þau í E-colybað tvisvar á dag og láta þau éta einhvern rándýran viðbjóð og horfa á ljótt hraun. Getur ekki klikkað.
Jæja svo er stefnan tekin heim í Brekku um páskana (bara ef mamma vissi hvað mér finnst lukku- og daimtertur góðar). Við Guðrún förum í leikhús á Akureyri á morgun (miðvikudag) og brunum svo í sæluna. Stoppið verður reyndar frekar stutt því við verðum að vera mætt á Krókinn á laugardaginn. Jæja þetta er nú að verða ágætt hróin mín. Vil enda þennan pistil á því að segja að ég hef misst trú mína á mannkyninu.
Kveðja, Bjarni

Ummæli
ps. mmmmmm.... daimterta!
kv/sigrún