Veikindi
Nú er maður rétt skriðinn í vinnuna eftir tveggja daga læsta hliðarlegu. Ég átta mig ekki fullkomlega á því hvað það var sem amaði að mér, enn því fylgdi nú einhver smá hiti og mjög langur og djúpur svefn. Held ég sé nú eitthvað að braggast þó maginn í mér sé ennþá á hvolfi. Magalega séð líður mér eins og á góðum mánudegi eftir langa og erfiða helgi, tilfinning sem ég er ekki óvanur en hef ekki fengið lengi. Það hlýtur nú að jafna sig skjótt. Verst að geta ekki drukkið kaffi.
Í ljósi þessara frétta þá hef ég ekki frá neinu skemmtilegu að segja. Þessir dagar hafa ekki verið tími frjórra hugsana og því læt ég þetta gott heita í bili.
Kveðja, Bjarni
Í ljósi þessara frétta þá hef ég ekki frá neinu skemmtilegu að segja. Þessir dagar hafa ekki verið tími frjórra hugsana og því læt ég þetta gott heita í bili.
Kveðja, Bjarni
Ummæli