All by myself

Myndbandið sem fylgir með þessum pósti fékk ég sent frá Gunna vini mínum. Alger snilld!

Annars ekkert nýtt. Mikið að gera, stanslaus ferðalög tengd vinnunni og grásleppuvertíðin að hefjast. Aldrei að vita nema maður eigi eftir að standa fram í stafni á mánudagsmorgun og bjóða náttúruöflunum byrginn. Það fer þó allt eftir veðri. Ef ég finn hleðslutæki fyrir myndavélina mína, þá er aldrei að vita nema maður eigi eftir að smella inn grásleppumyndum fljótlega. Sem minnir mig á það að ég er líka búinn að týna i-pod snúrunni. En jæja, ég verð líkast til ansi hreint gerðarlegur á sjónum, með armakúta og sífellt skjótandi upp neyðarblysum.

Annars er ég eitthvað að rembast við að búa á Skagaströnd og er kominn með herbergi. Ætlaði að gista mína fyrstu nótt hérna í gær og hafði því með mér slatta af dóti. Dagurinn í vinnunni fór svo mest í að velta sér upp úr því hvað það væri ábyggilega hræðilegt að vera ekki á Króknum hjá Guðrúnu og strákunum. Þetta endaði með því að ég keyrði með tárin í augunum yfir hólinn til baka, syngjandi: "Don´t whanna be...... All by myself.....ANY MORE!!!! Hello, is it me you´re looking for????.... og var kominn passlega í rjúkandi heitan kvöldmat. Nú ætla ég að gera aðra tilraun til að gista hérna enda þarf ég að leggja af stað til Reykjavíkur kl.06:30 í fyrramálið (að staðartíma). Jæja þetta er víst ágætt í bili og ég bið að heilsa ykkur hróin mín....



Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég held þú eigir nú ekki eftir að verða í erfiðleikum með grásleppuna, þú þaulreyndur sjómaðurinn frá dælustöðinni sælla minninga.
Við þyrftum að fara að taka dælupunga partý fljótlega og rifja upp gamlar og góðar sögur úr Dælustöðinni.

Dóra verður boðið með bara útaf því að hann er eini Mývetningurinn sem aldrei vann í Dælustöðinni.

Hilsen
Hinrik
Halldór sagði…
hehe
Ég var nú líka svo oft fullur í dælustöðinni þó ég hafi ekki verið að vinna þar. Það varð líka einhver að halda uppi merkjum Sniðils.


uhhh.. jájá
Bjarni sagði…
Já ekki spurning þetta er gott plan.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap