Skagaströnd

Sæl börnin góð.

Vildi nú bara láta ykkur vita að karlinn er í fullu fjöri og við hestaheilsu. Utan við mína daglegu baráttu fyrir kvenfrelsi og erfiðan undirbúning fyrir prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum þá hef ég verið að reyna að finna mér vinnu. Ef sú leit klikkar þá fer ég bara á þing. Ég kemst líklega að þar, enda engrar hæfni eða menntunar krafist fyrir þau ágætu störf. Svo dunda ég mér við að skrifa umsókn í sjóð og ef það gengur vel þá er aldrei að vita hvað gerist. Umsóknarskrifin framkvæmi ég á Skagaströnd og get svo sem ekki gefið það út strax hvort ég sé að vinna hérna eða ekki. Þetta er mjög flókið en kemur í ljós fljótlega. Svo er ég betur og betur að átta mig á því hvað þetta er samhengislaus texti sem ég er að skrifa.

Annars líst mér bara vel á Skagaströnd. Hér er allt í blóma og Húnaflóinn bæði djúpur og breiður og stærri en á korti. Þetta er allt mjög óvænt og áhugavert. Sit í fallegri skrifstofu og horfi út á flóann og tóm fiskvinnsluhús. Í hádeginu fer ég svo og ét á þeim goðsagnakennda stað Kántrýbæ og er maturinn prýðilegur. Gæti ekki verið betra. Hef annars engu við þetta að bæta.....

Kveðja, Bjarni

Ps. Fyrirtækið sem ég er að míga utaní heitir BioPol og er mjög áhugavert. Kíkið á www.biopol.is

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap