Póstur nr. eitthvað
Héðan úr Skagafirði er allt þokkalegt að frétta. Vakna, borða, kúka og sofa með einhverjum smá útúrdúrum. Er kominn með aðgang að netsnúru og hálfgert skrifborð í Verinu og get því hafist handa við að reyna að gera eitthvað. Verst að ég veit ekki hvern djöfullinn ég á að gera. Stefni að því að koma inn einni umsókn í AVS- sjóðinn fyrir lok mánaðar og er búinn að vera að þefa uppi einhverja samstarfsaðila. Ekki væri verra að fá í framtíðinni eitthvað borgað fyrir vinnuframlagið. Ég vinna, þú borga= vöruskipti.
Fór í ræktina hérna í gær og leist svona la la á þetta dæmi. Þessar ræktir eru svo sem flestar sama drullan. Umhverfishiti var þó úr öllu samhengi við þarfir flestra spendýra og þrengslin voru öfgakennd. Spriklaði eitthvað og nuddaðist skelfingu lostinn upp við sveitta Skagfirðinga á meðan ég barðist við að fá ekki innilokunarkennd. Sá fornleifafræðing sem ég kannast við en bar ekki kennsl á fleira fólk. Maður hefur svo sem ekkert val og ætli maður versli sér ekki árskort þarna. Læt þetta nægja í bili og bið að heilsa ykkur.....
Bjarni

Ummæli
Kveðja Solla :)
Húrra og tralala.....