La Post #213

Jæja börnin góð.

Nú hafa vinnumál svona eitthvað verið að þokast í rétta átt. Ég get svo sem ekki sagt meira í bili en spennandi hlutir eru hugsanlega í farvatninu. Lykilorðin eru: kúrekahattur, ísbjörn og ljót kirkja.

Annars hef ég bara haft það fínt hér í Skagafirði. Ég hef fengið húsaskjól hjá Guðrúnu og strákunum hennar en er að svipast um eftir herbergi eða lítilli íbúð. Ég get ekki betur séð en að veru minnar sé ákaft fagnað hér um slóðir og fólk ekki séð sig knúið til að mótmæla einu eða neinu hér í firðinum. Þó hefur nærvera mín skapað töluverðan usla í gæludýralífi í Laugatúni 3 (heima hjá Guðrúnu). Það á rætur sínar að rekja í menntun mína því fiskeldisfræðingar eru sennilega ekki hæfir til að sjá um gullfiskabúr. Eftir að hafa aukið tegundafjölbreytni í búrinu um 30% og yfirfóðrað hef ég náð að drepa út einn stofninn. Það voru einhverjir rauðir, litlir og friðsælir fiskar sem urðu fyrir barðinu á einhverjum appelsínugulum geðsjúkling með sverð sem ég bætti í búrið. Eftir miklar sveppasýkingar, saltböð og björgunaraðgerðir varð ég að játa mig sigraðan í gær þegar síðasti fiskurinn af þessum stofni dó. Síðan er hamsturinn dauður. Ég á þátt í því en fer ekki nánar út í það.

Ég vil taka það fram að ástæðan fyrir að ég er að leita mér að herbergi tengist ekki þessum gæludýradauða.

Hafið það sem best, Bjarni.

Ummæli

Halldór sagði…
Hvernig er nekt og rjómasprauta farin að hljóma í þínum eyrum....

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap