Brjóstsviði og kæfa
Ég hef hingað til verið blessunarlega laus við að fá brjóstsviða. Svona allavega þegar ég sleppi því að drekka áfengi í morgunmat. Núna hinsvegar, frá því kl. ca. 15:34 í dag, hef ég verið að fá þessi fjandans einkenni. Það eina sem mér hefur dottið í hug að gera við þessu helvíti er að drekka meira kaffi. Það gengur samt hægt og ef þið eigið einhver húsráð uppí rassgatinu þá megið þið láta mig vita.
Annars er allt frábært að frétta. Fór í rjúpur um helgina og var sjúklega snjall og flottur. Skaut fullt af rjúpu og át brauð með heimagerðri kæfu og Helluvaðsbræður gáfu mér kalt kindakjöt þegar við komum í bílinn. Guð blessi piltana á Helluvaði og allt þeirra dásamlega kindakjöt.
Kveðja, Bjarni

Ummæli
Einn sem býr með mér fær sér alltaf undanrennu við brjóstsviða og það virkar víst vel.
Kv/Sigrún
Við hjartaáfalli er ekkert að gera, nema bara að hætta þessu væli og borða meiri plokkfisk.
Kveðjur...Samherja-jarlinn.
Skútahraunsslátrarinn