Boy George



Fyrir einum tveimur dögum var frétt á mbl.is þess efnis að Boy George hafi lamið einhvern norksan vesaling sem hann hafði verið að pervertast eitthvað með. Mér finnst ekkert óeðlilegt að pervertast með Boy George en eftirfarandi setning vakti athygli mína:

„Það tók mig drjúga stund að opna dyrnar. Boy George tók á móti mér, vopnaður keðju og hann lét högginn dynja á mér,“ sagði Carlsen sem tókst að komast undan og út á götu á nærbuxunum einum klæða.


Þetta hljómar eins og einhver allra súrasti draumur sem maður hefur heyrt um og ég meina..... maður lætur ekki Boy George lemja sig í spað. Þetta er nú eitthvað það norskasta óhapp sem ég hef heyrt um lengi. Svo vekur hann heimsathygli með því að kæra atburðinn og kallar skömm yfir þjóð sína.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap