Síldin kemur og síldin fer...
Á föstudaginn komst ég í snertingu við almættið. Ég lagðist undir ullarteppi, með kaffi í bolla og hlustaði á „Á sagnaslóð“ á Rás 1. Þátturinn fjallaði um sögu síldveiða á Íslandsmiðum og söltun og vinnslu afurða. Þessi viðburður í mínu lífi fær 9 af 10 stjörnum. Dökkt suðusúkkulaði hefði híft þetta upp um eina stjörnu. Ég skora á landsmenn að gleyma ástandinu í þjóðfélaginu, fá sér kaffi og hlusta á Rás 1.
Það hefðu reyndar allir gott af því að hlusta á þennan þátt til að sjá það í hendi hvað við höfum það gott. Ágætis leið til að update- a gildismatið....
Nóg um það, Bjarni
Það hefðu reyndar allir gott af því að hlusta á þennan þátt til að sjá það í hendi hvað við höfum það gott. Ágætis leið til að update- a gildismatið....
Nóg um það, Bjarni
Ummæli
kv Konungurinn úr Þyrnirós
(aka Skarpi)