Skrapp í .....
bíó í gærkveldi með vinnufélögunum. Við kíktum á Reykjavík Rotterdam í boði Matís og skemmtum okkur allar (ég vinn bara með konum) konunglega/drottningarlega. Ég var nú ekki að gera mér miklar vonir þar sem ég hafði misvísandi upplýsingar um þessa mynd en hún kom bara nokkuð skemmtilega á óvart. Dr Gunni hafði komið með svona la la dóma hjá Sigmundi Sjálfhverfa í Mannamáli og ég hugsa reyndar að hann hafi gert það vísvitandi til að slá á væntingavísitölu hugsanlegra bíógesta. Gott mál, fín ræma, ágætlega leikin og gott kennslumyndband í smygli. Ég held að smygl eigi sér mikla framtíð í þessu landi. Smygla og selja sig, það er málið.
Annars er ég að fara til útlanda á föstudaginn. Ætla að flýja inn í skóg þar sem gengisbreytingar og óraunveruleikinn ná ekki í aumt rassgatið á mér. Ég er þar búinn að eyrnamerkja mér einn elg, 2 villisín og 3 refi. Á reyndar ennþá eftir að finna út hvernig í djöflinum ég smygla heilum elg til landsins. Ég trúi ekki að helvítis tollararnir muni reyna að koma í veg fyrir að maður dragi björg í bú.
Kveðja, Bjarni

Ummæli