Mættur



Jæja þá er maður kominn á aftur á þetta helvítis sker eins og sagði í bókinni, við illan leik þó. Ég hef sjaldan eða aldrei étið annað eins magn af svínafitu, rjóma og hamborgurum. Karl faðir minn hreinlega tróð ofan í mig frá morgni til kvölds og ég gat lítið gert til að stoppa hann. Á milli máltíða húkti ég rænulítill upp í veiðiturni eða lág fyrir uppi í rúmi með svima og óráði. Ég var þeirri stund fegnastu er ég steig aftur á fósturjörð vora og get ég nú lagt mér til munns heilsufæði og iðkað heilsusamlegri lífshætti svo sem leikfimi og hugleiðslu. Samkvæmt bjarstýnustu spám hefði ég ekki lifað við þessar aðstæður nema 2-3 daga í viðbót. Svona er að fara til veiða.

Við dvöldum við veiðar í 4 daga og voru felld 3 dýr, 2 dádýr (rádýr) og eitt villisvín. Ég og pabbi feldum reyndar ekki þessi dýr en það skiptir nú ekki öllu. Elgurinn sem ég hafði eyrnamerkt náðist ekki í færi og verður að bíða betri tíma. Það er ekki að spyrja að því, svona er að fara til veiða.

Tíminn hefur að sjálfsögðu verið afskaplega notalegur og maður er rétt að ná áttum eftir heimkomu. Henti inn nokkrum myndum sem sennilega bara pabbi og Gísli hafa gaman af.

Hafið það gott, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
its good to know about it? where did you get that information?
Nafnlaus sagði…
very nice! hahahahaha
Nafnlaus sagði…
yeah! its much better,
Nafnlaus sagði…
Gröfukallaspam - besta spamið
Bjarni sagði…
Já hvur djöfullinn er þetta. Langar að berja þessa menn!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap