La post #191



Einu sinni var fullt af fólki sem skuldaði bunch of money. Núna er fullt af fólki sem skuldar aðeins meira bunch of money. Hvað er málið, er einhver ástæða til að vera að æsa sig yfir þessu? Nú þegar slátur er komið í tísku og ungar húsmæður sem ekki kunnu að sjóða kartöflur (þetta eru kvenfordómar) eru farnar að svíða kindahausa úti á svölum og ræða um gæði mismunandi gerða sláturgarns, þá er kominn tími til að fagna. Draga íslenska fánann að húni, taka í nefið og fara að prjóna. Við höfum stigið stór skref, skref út úr óraunveruleikanum og skref inn í raunveruleikann. Ég t.d, er aðeins nær því að vera cool gaur í dag miðað við fyrir einu ári.

Þessu fylgir þó ekki eintóm gleði. Tvær hræðilegustu afleiðingar efnahagsástandsins snúa að Ríkisútvarpinu. Þær eru annarsvegar, aukin spilun á sataníska djöflatríóinu Ríó Tríó. "Jú það reddast, æ það reddast, bla bla eina ferð á ný"..... (færið mér fötu af mold, ég ætla að éta upp úr henni), og svo eru það endursýningar á Kalla kaffi í sjónvarpinu. Ég held að útvarpsstjóri vor, Páll Marquis de Sade Magnússon sé eitthvað að miskilja hlutverk sitt í kreppunni því það þarf ekkert allt að vera ömurlegt í kreppu. Það er líka hreinn óþarfi að reyna að kynda undir þunglyndi landsmanna með þessum hætti.Sýnið frekar sjónvarpsefni frá alvöru krepputímum. Reykjandi ráðherra með barta að tala um Bifreiðasölu Ríkisins og Áburðaverksmiðjuna, sem by the way þarf að fara að endurvekja fyrir íslenskan landbúnað.

Annars fór ég að hlusta á Helga og hljóðfæraleikarana í gærkvöldi. Þeir eru hreint alveg ótrúlega góðir og hafa sjaldan átt betur við. Kreppulýðinn vantaði reyndar og voru frekar fáir mættir. Stemmningin var samt fín og allt varð brjálað þegar þeir spiluðu Byltinguna. Gaur með bindi brjálaðit og ég sýndi svipbrigði.

Étið það sem úti frýs í kreppunni ónytjungarnir ykkar, Bjarni
(Ekkert perónulegt)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
mér finnst að þú ættir að nota forstofuna þína í að setja upp kvi og fara að rækta ýsu til hörðu áranna.
Bjarni sagði…
Já nóg er plássið allavega. Kann samt betur að meta þorsk og langar helst til að vera með belju og 3 rollur þarna........

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap