Boðorðin 11.

Á þessum síðustu tímum er ég gjarnan spurður álits á því, hvernig ég telji best að leysa þessi smávægilegu efnahagsvandamál sem upp eru komin. Mér finnst þetta reyndar svo lítið mál að ég hef varla nennt að svara þessu. Ekki er komið að tómum kofanum hjá mér með þetta frekar en annað. Stundum vildi ég óska þess að ég væri bara meðalgreindur eins og þið hin svo lífið væri ekki svona flókið. Ekki varð mér skotaskuld úr því að setja upp aðgerðaráætlun sem myndi leysa þetta á svipstundu.

1) Lýsa því yfir að Ísland sé búið að taka upp Evruna og okkur sé fucking bitch sama hvað þessir djöfulsins skrifræðis skrípalingar í Brussel segja. Hvað halda þeir að þeim komi við þó við tökum upp Evruna? Við eru sjálfstæð þjóð, stórveldi reyndar. Síðan förum við að prenta Evrur eins og enginn sé morgundagurinn. Við gætum jafnvel farið að flytja þær út í gámavís. Skuldir heimilanna verða svo strikaðar út í kjölfarið og byrjað á núlli.

2) Lýsa því yfir að við ætlum ekki að koma nálægt því að borga erlendar skuldir þessara brennuvarga sem voru að stjórna bönkunum. Þessir lánlausu Bretar geta sjálfir sér um kennt að vera svona heimskir. Að leggja pening inn á þessa reikninga var álíka gáfulegt og að láta róna geyma áfengi.

3) Þessar yfirlýsingar koma væntanlega til með að baka okkur einhverjar óvinsældir og við því verðum við að vera búin. Því skal stofna íslenskan her með það sama. Í kjölfarið getum við boðið Gordon Brown að sjá um loftvarnir yfir Bretlandi, gegn spikuðu gjaldi að sjálfsögðu .

4) Fyrrverandi bankastjórar og óskabörn þjóðarinnar verða ráðnir sem æðstu menn peningamála. Þeirra kunnátta í að svíða frjóa jörð verður beitt gegn óvinveittum þjóðum.

5) Við lokum landamærum fyrir erlendu vinnuafli og bönnum innflutning á öllu nema haframjöli og kaffi.

6) Þegar búið er að ríkisvæða öll álverin, fer mest öll framleiðslan í að byggja upp herinn og vígatól hin djöfullegustu sem sést hafa. Einnig verða framleiddir rafmagnsbílar til einkanota. Að sjálfsögðu verða allar sprænur virkjaðar og háhitasvæði verða sem svissneskur ostur innan nokkurra ára.

7) Danir verða minntir á það reglulega hvað þeirra land er flatt og ljótt. Einnig verður þeim bent á að þeir geta sig hvergi falið á sinni guðsvoluðu flattneskju.

8) Eina fyrirtækið sem verður ekki í ríkiseigu er lífrænt fiskeldi, rekið af sjálfum mér. Þar verður affallið notað til að rækta upp hampakra og afskurður af því notaður til að kynda upp amfetamín- verksmiðjur. Ein en rósin í hnappagat hins nýja „útflutnings“ stórveldis.

9) Fólk verður hengt fyrir að vera linmælt enda slíkur framburður merki um dáðleysi og vingulhátt hinn mesta. Allur framburður tungu vorrar verður færður í nokkrum skrefum nær uppruna sínum.

10) Að lokum lýsum við yfir eignarhaldi á Norður heimskautinu og minnum á að við höfum tilkall til Færeya.


Í þessu er reyndar einn liður í viðbót, hann er nokkurskonar ríkisleyndarmál. Hann snýr að smíði mörgþúsunda smáknerra og viðbragðsáætlun til landflótta. Ragnar Bjarni, sem verður ráðinn ráðherra skipamála, ef af þessu verður, er með þessa hugmynd í frekari mótun. Með þessum skrefum munum við eflaust fljótlega komast nær þeim þjóðum sem við höfum gjarnan vilja bera okkur saman við, t.d frænda okkar N-Kóreu manna.

Hafið það gott, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap