Datt á andlitið
Lagðist svo lágt að opna reikning á andlitinu (facebook) og hefur það tekið frá mér voðalega mikla bloggorku. Hef reyndar ekki frá neinu að segja enda gerist ekkert í þessum bæ utan við að einhverjar andanefjur busla fram og aftur og stúta sér svo í einhverju drasli og drukkna. Mér finnst fávitalegt að hvalir geti drukknað. Það er svona eins og við gætum fengið of mikið loft og þyrftum alltaf að vera að stinga hausnum ofan í vaskafat. En það er nú önnur saga.
Annars er haustið skollið svo tilfinnanlega á að það er full ástæða til svartsýni. Engin ástæða til að líta bjartsýnn fram á veginn þegar er að koma snjór og kuldi, efnahagsástandið í rúst og maður þarf að fara að keyra á nöglum. Það fer allt þráðbeint til helvítis.
Var að bæta við einhverju drasli í albúm hér til hægri og þið getið litið á það ef þið eruð í stuði. Engin svartsýni þar, bara fallegt fólk að gera skemmtilega hluti í fallegu umhverfi. Sannkallað augnakonfekt (smá nekt líka) sem ætti að gleðja ykkur í skammdeginu víst þið eruð svona svartsýn.
Áfram ég, ÉG

Ummæli