Póstur 175
Góðan dag.
Þá er maður búinn að hlaða inn myndum frá Ameríkuferðinni sem við frændur fórum í. Reyndar tók ég lítið af myndum í NY en því meira af myndum á golfvellinum og golfmótinu sem við kíktum á í Norður Carolínu. Ég læt það kyrrt liggja að fara út í einhverja hard core ferðasögu en áhugasamir geta hringt í mig og fengið nánari upplýsingar. Ferðin var í boði Jens frænda og var útskriftar og 30. afmælisgjöf til mín. Takk fyrir það frændi, þetta var alger snilld!
Annars kom fram í fréttum að íslenska ríkisstjórnin hafi ákveðið að styrkja Handknattleikssamband Íslands um 50.000.000 kr. Það er ekki að spyrja að því hvað ríkisstjórnin er alltaf fljót að bregðast við og styrkja góð málefni. Þetta minnir mann á þegar þeir, eftir mikla fundi gáfu 3.000.000 kr. þegar flóðbylgjan skall á löndin umhverfis Indlanshaf.
Kveðja, Bjarni
Ummæli