Á plastfæti með golfkylfu og byssu

Stjörnuspá mín fyrir daginn í dag er á þessa leið:

„Þú vaknar andfúll, órakaður og í sokkum sem þú fékst á Saga Buisness Class. Leið þín liggur til vinnu og þú fetar stíg sem liggur ofar þeim mörkum sem almenningur hefur skilgreint sem eitthvað norm. Þú munt stela skrifborðshillu á sjöundu hæð, drekka kaffi og sjá álitlega mey sem vinnur í húsinu. Þú sérð ekki hvort hún ber hring á fingri, ef ekki þá er hún lesbísk. Véfréttin færir þér fréttir af húsaþyrpingu á mörkum hins óbyggilega heims. Umskipti gætu verið í nánd, þér mun sennilega vaxa einglyrni og með því munt þú sjá framhjá himinháum reikningum, öðlast nýjan sófa og jafnvel gúmmíplöntu. Þig hlakkar til að fá Gabríel erkiengil í gæs, hann mun þó vera vængstýfður á Reykjavíkurflugvelli eitthvað fram eftir degi. Kvöldflug gæti glatast.“

Ef þið vitið ekki hvað ég er að fara með þessu þá skulið þið kveikja á The lakes of Canada með Sufjan Stevens, halla ykkur aftur í stólnum og slaka á. Þetta skýrist allt á endanum.

Ummæli

marta sagði…
sérdeilis hressileg stjörnuspá
Nafnlaus sagði…
Það er langt siðan ég hef verið kallaður Gabríel. Ætli það hefi ekki verið á Laugum af Ödda, sem bætti við að ég ætti að safna síðu hári og verða rokkari. Þá fengi ég fullt af kerlingum eins og Robert Plant sem er sérlega hárfagur eins og við allir englarnir.
Bjarni sagði…
He he já það er gaman að þessu gullin mín

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap