Sparnaður

Til að takast á við erfitt efnahagsástand þá ákvað ég að fara á hjóli í vinnuna í gær. Hjólaði svo heim, náði í íþróttadótið og hjólaði í ræktina í mígandi rigningu. Þegar ég var búinn að þessu öllu þá fannst mér ég eiga skilið að fara og eyða peningum, sem ég reyndar gerði ekki. Þar sem ég var með bílinn í bílageymslunni í nótt þá endaði ég auðvita á því að mæta á honum í vinnuna í dag. Það var bara eitthvað svo kúl að taka lyftuna niður í kjallara, opna hurð með fjarstýringu og þjóta út í lífið.

Ég hef sem sagt lagt mitt af mörkum við að rétta þjóðarskútuna af. Ef við hjálpumst öll að og beitum heilbrigðri skynsemi, t.d að taka með okkur nesti til útlanda og drekka Grænan Braga í stað Merrild, skeinum okkur á færri blöðum og hjólum í vinnuna 1x í viku þá verður þetta allt í lagi. Safnast þegar saman kemur og ef þið takið þátt í þessu átaki þá komumst við kannski upp með að reisa færri álver. Lyftum Geirstaki, áfram Ísland.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þú mátt skrá mig í þetta átak..
En má sleppa þessu með Græna Bragann og drekka helmingi minna kaffi í staðinn ?
Bjarni sagði…
Já ég skal gefa þér leyfi til þess;) Fór á hjóli í vinnuna í dag enda veðrið hér alveg glimrandi og ég ekki nema 4 mín á leiðinni.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap