Nenni ekki að flytja.........
Jæja er ekki best að fara að setja hér eitthvað inn á dagbókina? Það finnst mér nú ljósin mín. Nú hef ég fengið afhenta íbúðina sem ég er að fara að leigja. Fékk lyklana reyndar í síðustu viku en hef ekki einu sinni drullast til að fara og kíkja betur á hana. Svona er mikið að gera hjá manni.
Asnaðist til að skrá mig í Meistaramót Golfklúbbs Akureyrar og var að spila fyrsta hring af 4 í kvöld. Byrjaði eins og Tiger Woods á sterum en drullaði svo hressilega upp á bak að meðspilarar mínir voru eflaust farnir að halda að ég hefði orðið skyndi- hreyfihamlaður. Ég var eins og hæðaveikur simpansi að berja í jörðina með skóflum. Er samt eins og staðan er í 4. sæti í mínum flokki og 14 höggum frá efsta manni. Jæja það eru 54 holur eftir og það þýðir ekkert að leggja kylfur í rassgat heldur skal girða sig í görn, sjúga upp í augun og taka í nefið. Fyrir þá sem skilja golf þá fór ég þessar 5 par 3 holur sem eru á vellinum á samanlagt 18 höggum yfir pari. Í stuttu máli þýðir það að ég gæti hæglega verið laus við að sjúga svona hrikalega feitt (ég er að reyna að sjá ljósa punkta fyrir morgundaginn). Svona er lífið.
Veit svei mér þá ekki hvenær ég hef tíma til að flytja?? Verð sennilega að eyða sunnudeginum í það. Er reyndar núna uppi í vinnu að skrifa grein því það styttist í einhver deadline. Læt kannski vita á morgun hvort ég verði jafn hrikalega hreyfihamlaður á næstu 18 holum.
Kveðja, Bjarni

Ummæli