Nýa íbúðin

Jæja, þá er maður búinn að flytja, þrífa gömlu holuna og eins og þrælarnir sem byggðu píramídana sögðu þegar þeir ræddu um lífeyrissparnað: From here, it´s nothing but smooth sailing. Ég hef samt haft krónískar áhyggjur af því að hafa ekki þvottavél. Hitti stúlku á förnum vegi, spurði hvort hún gæti lánað mér þvottavél. Já, hún gat það, húrra. Árangur minn í að fá þvottavélar lánaðar er því 100%, ekki slæm tölfræði það. Nú vantar mig ekkert nema:

Persnesk teppi, nýjan sófa, nýjar mublur í stofuna, myndir á veggina, diska og glös, nýjan lampa, skógrind, flatskjá, heimabíó, Bosch kaffivél sem malar baunir, nýtt náttborð, rúm í gestaherbergið, styttur, vinnuborð í forstofuna, einhver djöfullsins blóm, snaga, fullt af mat, aukið sjálfstraus, hvítari tennur og slatta af peningum. Eða bara konu sem getur græjað þetta allt saman. Væri þá líklega tannlæknir, ekki slæm hugmynd.

Ef þú ert myndarleg og vel stæð "tannlæknakona" (gott orð) sem kann að verka gæsir og þrífa byssur þá endilega skildu eftir skilaboð.

Kveðja, Bjarni

Ps. Femínismi engin fyrirstaða, eða er allavega þolanlegur ef þú nennir að færa okkur félögunum samlokur og svaladrykki upp á golfvöll eftir fyrri 9 svona við og við.

Ummæli

ingi rafn sagði…
Ég gúgglaði fyrir þig dentist women clean gun til að hjálpa þér að finna ástina..

http://farm3.static.flickr.com/2205/1806302702_a6faf9506d.jpg
Bjarni sagði…
LOL! Ég held að ég leiti aðeins betur áður en ég hringi í þessa.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap