Hmmmmmmmm....
hvernig er best að setja upp þennan introduction kafla? Ef ég byrja á því að fjalla um laxfiskaeldi í Evrópu og minnist svo á bleikjueldi á Íslandi.... fer svo út í það úr hverju þetta fóður er gert, minnist á stofna uppsjávarfiska og .......... hvernig ætli þessi pútter sem Hermann var að nota komi út? Ef ég fengi að prufa hann og bera hann saman við minn pútter. Já fiskar.... það verður skortur á lýsi mjög fljótlega.. best að blaða í þessari grein um að ekki sé alveg víst að hlutfall n3 og n6 skipti jafn miklu og talið var.... þar kemur inn munurinn á því hvað er upprunið úr hafinu og hvað kemur úr plöntum. Verð að fara að panta flugfar til Svíþjóðar..... hvar ætli bestu bokkarnir séu núna? Ætli Gustav hafi skotið fína bokkinn sem ég sá í fyrra eða ætli hann sé enn að spranga um skóginn á Nya Ryd??? Hvar eru þessar greinar um soya- olíu og djöfullsins upphafshögg voru þetta hjá meistaraflokknum á 1. braut í gær......... þyrfti eiginlega að skreppa upp á æfingasvæði... sortera greinar...
Svona hefur þessi sunnudagur liðið hjá mér hérna uppi í vinnu. Ég sem hlakkaði svo til að fara í 8-16 vinnu, frí um helgar, ja hérna. Skrái mig ekki í fleiri golfmót í miðri viku.
Svona hefur þessi sunnudagur liðið hjá mér hérna uppi í vinnu. Ég sem hlakkaði svo til að fara í 8-16 vinnu, frí um helgar, ja hérna. Skrái mig ekki í fleiri golfmót í miðri viku.
Ummæli