Óbærilegt sumarfrí?
Eruð þið að upplifa óbærilega leiðinlegt sumarfrí? Vantar ykkur eitthvað að gera í góða veðrinu? Tugþúsundir Íslendinga þjást um þessar mundir og eru að drepast úr leiðindum og því ákvað ég að koma með 3 góð ráð til að eyða tímanum:
1) Skrifið bréf til allra ráðherra í Ríkisstjórninni. Í bréfinu skuluð þið lýsa hvaða persónulegu væntingar þið gerðuð til þeirra er þau hófu setu í Ríkisstjórninni. Endið hvert bréf á því að segja þeim hvað ykkur finnst um þau sem persónur.
2) Ef þið vitið um örnefni í náttúru Íslands sem hefur að öllum líkindum í fyrndinni borið annað nafn, athugið hvort þið getið ekki fundið lögfræðing og farið í mál við landeigendur. Dæmi, Hvannfell (við Búrfellshraun) heitir Hvammfell á sumum gömlum landakortum.
3)Skrifið lista yfir allt sem fer í taugarnar á ykkur í fari íslenskra ökumanna og í umferðamenningu þjóðarinnar. Opnið bloggsíðu um umferðaröryggi og afhendið Dómsmálaráðherra plagg með 1500 undirskriftum og gefið honum gulllitað stýri.
Ef engin af þessum tillögum fellur ykkur í geð getið þið hringt í mig og við útfært þessar tillögur að hætti hvers og eins.
Kveðja, Bjarni

Ummæli
Þú varst ekki búinn að frétta að skítameistarinn Sixten heyrir sögunni til. Hann hljóp fyrir bíl sem ekki vildi stoppa.
Pápi
Engu að síður mjög hugulsamt af þér að benda á góðar leiðir til afþreyingar.
Takk fyrir :)
þetta var ég þarna fyrir ofan
Kv Marta