Gleðilega Þjóðhátíð





Ég get ekki talist mjög minnugur maður. Ekki svo að skilja að ég sé neitt verri með þetta heldur en flestir félagar mínir og vinir en mér finnst ég samt ekki muna neitt. Ef ég reyni að muna hvaða ár ég gerði hitt eða þetta þá þarf ég helst að grafa upp launaseðla, gamla reikninga eða byrja frá 3 ára aldri og telja mig í gegnum árin eitt af öðru. Ef ég svo á að muna hvernig ég nota gasfastajöfnuna úr fyrsta efnafræðiáfanganum hjá Sigþóri, reikna mólstyrk eða reikna út Júllara krafta til að draga hluti með ákveðnum núningsstuðli upp 18° halla finnst mér ágætt að fara heim og leggja mig.

Svo eru aðrir hlutir sem sitja fast í minninu. Ég man nákvæmlega þegar ég skaut fyrsta sílamáfinn minn þegar ég var 14 eða 15 (þarna sjáið þið, ártöl). Hann sveif yfir Skefilshólunum í suðaustan strekkingi og fékk höglin í vinstri vængin, eitthvað fór líka í búkinn og hann datt steindauður niður í fjöru. Hann féll í þriðja skoti með 3" Remington Nitro Magnum og haglastærð nr. 4. Frikki Steingríms keyrði stuttu síðar framhjá á húslausum Massey Ferguson (reyndar með veltigrind). Þann 10 nóvember, 2007 átti ég prýðilegt skot með kylfu númer 6 á fyrsta teig á Dynekilens golfvellinum. Ég var að spila með Callaway Warbird kúlu. Gunni fór útúr braut hjá litlum læk í öðru höggi eftir að hafa lent vinstra megin í karganum hjá klettum og grenitrjám eftir fyrsta högg. Nenni ekki að skrifa restina upp en ég endaði á pari og man hvert högg. Ég gæti líka farið með nákvæmar lýsingar á öllum þeim dýrum sem ég hef fellt og talið upp hvaða kúlur og vopn ég var með, hvernig viðraði ofl. Will Perdue sem spilaði með Chicago Bulls notaði skó nr. 22 og A.C Green hjá sem var hjá LA Lakers til 1993 var númer 45. Hausinn á manni er fullur af því sem í daglegu tali gætu flokkast sem fullkomlega gagnslausar upplýsingar. Svo má spyrja sig hvað er gagnleg upplýsing og hvað ekki?

Ég held að meiningin með þessum pistli hafi átt að vera sú að ég hafi ætlað að benda á að svona blogg sé nokkuð góður staður til að geyma upplýsingar sem annars færu út í veður og vind. Ég fór og fletti aftur í fyrstu færslurnar áðan og þó þær séu óttalegt rugl margar hverjar og ekki gamlar þá skerpa þær aðeins á minninu t.d varðandi Noregsdvölina. Ég ætla líka að hætta að kalla þetta blogg og kalla þetta dagbók. Svo er á einhvern undarlegan hátt nokkuð nærandi að sitja, drekka kaffi og hripa eitthvað niður. Á morgun get ég t.d kíkt hingað inn og rifjað upp að ég spilaði golf á þjóðhátíðardaginn og var óhemju lélegur. Ég man reyndar hvert högg þó þau hafi verið mörg.

Kveðja, Bjarni

Ps. Set inn myndir sem ég lofaði um daginn af flugnaveislunni miklu. Nenni ekki að setja nema 3 en þær gefa kannski einhverja mynd af því hvernig ástandið var.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
that's way too cool.
Nafnlaus sagði…
Interesting topics could give you more visitors to your site. So Keep up the good work.
Nafnlaus sagði…
Gomen kudasai.
Nafnlaus sagði…
Ég verð að taka undir með þeim síðasta, gomen kudasai Bjarni!
Nafnlaus sagði…
Hehe snilld, get ekki beðið eftir að kíkja heim.
Bjarni sagði…
Nei ég skal trúa því. Það er þvílík unun að anda að sér þessu dásemlega rykmýi og láta svo varginn naga sig inn að beini.
Nafnlaus sagði…
Þetta er svakalegt..
Þú hlýtur að hafa photoshoppað þetta !!

Spilamann
Bjarni sagði…
He he nei ég fiktaði ekki neitt í þessu. Tók ennþá betri myndir morguninn eftir sem ég verð að koma hér inn. Þarf eiginlega að búa til möppu í albúmið.

Kveðja, Bj

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap