Uppskrift af verstu helgi í heimi

Fann þessa auglýsingu á holar.is

Hólar 902 - framtíðarskipulag

Dagana 16. - 18. maí stendur Guðbrandsstofnun fyrir samræðu um framtíðarskipulag Hólastaðar undir heitinu Hólar 902.

Dagskráin hefst á föstudagskvöldinu kl. 21 með erindi um kirkjurnar á Hólum.

Allan laugardaginn verður umræða þar sem ólíkir aðilar koma með stutta innleiðingu inn í umræðuna og síðan verða málin rædd.

Á sunnudagsmorgni verður síðan samantekt.

Nánari dagskrá þegar nær dregur.

Með Hólum 902 gefst tækifæri til að ræða framtíðina.

Takið tímann frá.


Jæja ætlar einhver að láta sig vanta?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hver vill ekki verja næstu helgi í að ræða kirkjumálin eftir stuttar innleiðingar? Ég mæti amk.

kv
Jói Pétur
Bjarni sagði…
Ég myndi koma og hjálpa þér ef ég væri ekki svona déskoti upptekinn;) Annars verðum við bara að muna að ræða þessi mál næst þegar við hittumst.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap