Upp kemur svifryk um síðir
Nú er farið að hlýna heldur hér í bæ, hálku tekur upp af götum og ljóst er að það styttist í ógnvaldinn. Það er svo sem ekkert annað sem maður getur gert en að loka gluggum og halda sig heima. Ég geng um með hvíta dulu fyrir vitum mér og til öryggis hef pakkað öllum bókunum inn í matarfilmur. Ég hef brotið hvíta þvottinn saman og sett í lofttæmdar umbúðir. Annar þvottur er í kommóðunni og hef ég teipað fyrir rifurnar á skúffunum. Ég er nakinn. Einnig er ég búinn að kítta aftur ísskápinn og eldhússkápana. Lager af dósamat á ég inni í kúlutjaldinu í stofunni sem ég fóðraði með sláturhúsgrisjum og bómull. Þar á að vera hægt að nærast í friði fyrir djöfulmóðunni. Þar er líka ryksugan mín til öryggis sem ég get einnig notað til að hafa samband við Bjarna Fel og fá upplýsingar um stöðuna. Ég treysti engum öðrum enda getur hann notað augabrúnirnar á sér sem loftnet til að ná sambandi við þá hjá Sambandinu. Farsíma er ekki hægt að nota við þessar aðstæður og ég er búinn að henda sjónvarpinu og teipað fyrir loftnetsgatið á veggnum enda kemur ófögnuðurinn allur þar inn. Fuglarnir sitja svo í trjánum og vita ekki hvað verða vill.
Annars líður mér vel....
Annars líður mér vel....
Ummæli
Heyrumst næst