Svifryk 121
Nú hefur bloggþörfin dregið mig að lyklaborðinu þó ekkert sé títt hér úr svifryksmenguninni. Reyndar er nýfallinn snjór þannig að loftið er óvenju gott. Það er nýtt áhugamál hjá mér að ræða þessa svifryksmengun við fólk þegar ég veit ekki hvað ég á að tala um. Í stað þess að ræða um veðrið gríp ég til svifryksumræðu á háu plani en þetta er reyndar svo nátengt veðri að maður sleppur yfirleitt ekki alveg. Nú hef ég komið hvoru tveggja að og var fljótur að því.
Kíkti í kaffi til Birkis og Rósu í gærkveldi. Hafði ekki hitt Birki nokkuð lengi og því var kjörið að uppfæra gagnabankann. Auðvitað fór kvöldið aðalega í að ræða um gamla tíma og fá fréttir af hinum og þessum skólafélögum frá Laugum. Rifjuð var upp sagan þegar við gengum um Húsavíkurbæ að næturlagi til að finna hús rakaranns með það fyrir augum að brjóta hjá honum rúðu. Það ætlaði Birkir að gera til að hefna fyrir hræðilegustu klippingu sem sést hefur norðan Berlínar. Þessi klipping varð til þess að hann hætti að líta út fyrir að vera 12 ára og leit út fyrir að vera ekki fæddur. Fékk ekki skipt vinning í spilakassa og varð aðhlátursefni Húsvíkinga sem voru klæddir í kammóflashföt og drukku landa úr djúsbrúsum. Gæsaferð á skellinöðru sem bræddi úr sér bar á góma og mörg vistarbrot hafa sveipast meiri ævintýraljóma með hverju skiptinu sem við hittumst.

Ummæli
Svifryk..já, Öddi bíður eftir að geta rætt um það í hollenska Steiner leikskólanum hennar Sigurrósar, en framburðurinn vefst fyrir honum svo það er ákveðin hætta á að hlutir misskiljist. Hann horfir samt á hollenska sjónvarpið og glósar og er byrjaður að þýða leikskólabæklinginn til að vera með á nótunum. Þóra lærir kvennafræði og heimspeki og er áhugasöm um undarlegar draumfarir þínar sem virðast vera af sækóanalískum toga; hún mælir með heildarbindum verka Freuds til að ráða bót á djúpstæðum undarlegheitum. Holland er annars ágætt en helvíti flatt...fínt meðan það sekkur ekki. Kveðja Þ og Ö