Píslarganga



Það var fyrir einum 15 árum að Snæbjörn Pétursson tók upp þann sið að ganga í kringum Mývatn á Föstudaginn langa sem þjáður væri. Í kjölfarið fóru að bætast í hópinn lærisveinar héðan og þaðan og sér ekki fyrir endan á þessu öllu saman. Þessi gjörningur nokkurra sérvitringa verður samt svo lítilfjörlegur þegar maður les fréttir frá Filippseyjum þar sem fólk iðrast af sannfæringu á köldum krossi eftir vel útilátin vandarhögg. Ekki má þó gleyma því að 32 km ganga á glerhörðu asfalti fer illa með mjaðmirnar og í þessu felst kannski einhver iðrun. Svo er natturlega alger pína að líta ógðefellda ringulreiðina í mývetnskri náttúru berum augum.

Ég held að Pétur og félagar gætu grætt mun meira á því að skipta út þessari píslargöngu fyrir krossfestingar. Þannig héldist allur lýðurinn á hótelplaniu og hægt væri að selja kakó og kleinur í stað þess að senda þau út á gaddinn með eigin mal. Maður verður líka sjálfsagt svangur að hangsa á krossinum tímunum saman. Það væri hægt að reisa gæðakrossa úr afgangstimbri frá Harðviði á Húsavík og selja hvert pláss á krossi fyrir formúgu. Hvert pláss gæti t.d kostað 30.000 kr klukkustundin og svo væri að sjálfsögðu fjölskylduafsláttur. Einnig væri hægt að láta berja sig með svipu, 100 kr höggið. Mamma gæti svo verið þarna yfir daginn ef upp kæmu einhver vandamál varðandi blæðingar eða yfirlið hjá óvönum krossförum. Eftir þetta væri svo hægt að fara og láta sér blæða í lóninu um stund og halda svo heim og iðrast eitthvað meira fram á vorið. Snæbjörn ætti að sjálfsögðu að ríða á vaðið og vera fyrstur á krossinn.

Láttum ekki frændur okkar Filippseyinga sitja eina að kjötkötlunum og sýnum dug og framsýni í nafni frelsarans.

Góðar stundir.

Ummæli

marta sagði…
jámm, mér finnst bloggið þitt hressandi og skemmtilegt :)
Gaman að lesa. Hafðu það gott og gleðilega páska ...
Marta Jónsd.
Bjarni sagði…
Já takk fyrir innlitið. Kíkti á bloggið hjá þér og sé að ég er ekki sá eini sem er að skaufast í skóla;)
Nafnlaus sagði…
Kvitt kvitt fyirir innlitið.
Skylst að þau skötuhjú Sigrún og Dóri séu búinn að ákveða daginn sem stúlkan verður blessuð, bæði af presti og blessuð með nafninu Bjarnfríður Jóhanna...
Við hljótum að hittast við það tilefni. Ha ha ha :)
kv.Jóhanna

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap