Morgunmatur

Morgunmatur er sagður mikilvægasta máltíð dagsins og ég reyndar get ekki byrjað daginn án þess að rífa í mig. Þó það sé lífshættulegra að sleppa kaffinu þá bara verður maður að éta eitthvað þegar maður vaknar, annar verður maður bara bjánalegur. Eftir að hafa étið morgunmat með Skarphéðni um liðna páskahelgi og eftir að hafa fyrir tilviljun (ég horfi ekki á Rachel Ray)séð mann fullyrða að 1000kcal væru betri en ein beygla og djúsglas þá fékk ég hugljómun. Ég ákvað að gerast áhugamaður um morgunmat. Leið mín lá því í Bónus í gær þar sem ég verslaði eitt og annað kjarngott í þessa mikilvægustu máltíð dagsins.

Ég vaknaði svo í morgun og mallaði mér hafragraut, sauð mér egg, át hrökkbrauð með delfíosti, tók lýsi og drakk glas af grænmetisdjús. Þetta er farið að hljóma eins og árshátíð hjá Sollu á grænum kosti þó ég sé ekki viss um að hún geti étið linsoðið hænufóstur. Ég tek það þó fram að ég reyni að kaupa helst ekki lífrænt ræktaðar vörur enda missir maður bara hárið (ég má ekki við því) og verður tannlaus af því að éta svoleiðis rusl.

Ég veit að allir eru nú kátir með að vita hvað ég át í morgun og hvað ég ætla að éta næstu morgna (ætla að bæta kíví inn í þetta og helst smá kjöti). Að lokum væri gaman að bera þetta saman við það sem ég horfði á eftir renna ofan í ginið á Skarphéðni á föstudagsmorguninn langa. Það væri hægt að fæða heila fjölskyldu í gámi við Hverfisgötuna með þeim ósköpum í heila viku.

Fullur diskur af Hafrefras með rúsínum og íþróttasúrmjólk
1 kíví
1/2 eppli
3 stórar brauðsneiðar með túnfisksalati
4 egg
2 glös undanrenna
2 glös vatn
1 Haldapoki af einhverjum töflum

Góðar stundir lömbin mín.

Ummæli

marta sagði…
Verði þér að góðu :)
Nafnlaus sagði…
ég sem fékk mér smá snakk með ídýfu og coke glas og svo er það ég sem er feitur en ekki hann, þetta er náttúrulega bara ósanngjarnt...
Bjarni sagði…
Já takk fyrir það. Það er gott dæmi um hvað lífið er skemmtilegt núna að það skemmtilegasta sem maður geri sé að éta morgunmat.
Nafnlaus sagði…
já ég verð að viðurkenna það að það er eitt það skemmtilegasta sem ég geri, þ.e. að borða morgunmat. Fyrst að útbúa hann, svo að leggja fallega á borðið eins og amma Erna, síðan að gæða sér í rólegheitunum á ljúffengum og litríkum mat og auðga andann um leið með góðu spjalli. Fullkomnun hvers dags:)

Bestu kveðjur frá Hollandi
Þóra
Nafnlaus sagði…
tja, hvað skal segja...mar var náttlega ekki búinn að éta í eina 6-8 tíma sko...!!! En þessi umræða minnir mig samt á einn eftirminnilegasta kvöldmatinn minn héðan frá Vífilsgötunni:
800 gr dolla af steiktum fiskbúðingi
500 gr bakaðar baunir með
6 eggstórar kartöflur, líka með...
1 kúgfullur diskur af cheerios og ab-mjólk á meðan ég eldaði hitt...þar sem ég var svo svangur að ég gat ekki beðið.

Jæja, farinn á háttinn áður en ég verð aftur svangur...

kv Skarpi
Bjarni sagði…
he he snilld....

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap