Maður vikunnar......
að þessu sinni er hinn gulrótarsósaði og aflitaði Banan Boat pálmaolíupróteinpinni Arnar Grant. Titilinn hlýtur hann fyrir að hafa komið sér í vandræði með því að brjóta bílrúðu hjá nágranna sínum þar sem hann lagði í vitlaust stæði (stæðið hans). Arnar háði harða baráttu við Bubba Morthens sem hefur gefið hrokanum lausan tauminn í vikunni og sannað sig sem mesta fífl í Vogum.
Arnar kveðst drengur góður og aldrei hafa gert flugu mein en bílar eru kannski ekki inni í því. Og ég ætla svo sem ekki að vera dómari í þessu máli. Þetta leiddi hinsvegar hugann að því þegar hann sýndi sínar bestu hliðar með góðum húmor í Sjallanum fyrir nokkrum árum og meig á buxurnar hjá kunningja mínum til að fagna Fitness titli sem hann vann það kvöld. Þar stóð hann ber að ofan í leðurvesti og maður mátti passa sig á því að renna ekki í kókosfeitinni sem draup af honum. Valdi svo minnsta manninn á klósettinu og meig á fötin hans. SVALUR
Ummæli