Fréttir nr. 126
Af mér er það að frétta að hápunktur síðustu daga var ódauðlegt túnfisksalat sem ég útbjó af mikilli ástríðu á föstudaginn. Það er svo ódauðlegt að ég er ekki búinn að klára það. Restin er hér inni í ísskáp í vinnunni og bíður þess að vera étin á morgun. Ég verð sjálfsagt veikur af því en mér er alveg sama, ég vil ekki henda mat. Túnfiskur, svartar ólífur, relish, mulin fersk græn piparkorn, rauðulaus egg, létt industrial majones, laukur og sellerí og eitthvað. Hollustan í fyrirrúmi enda voru hlutföllin góð. Það er ekki hægt að éta túnfisk úr dós öðruvísi en að drekkja honum í öðrum hráefnum slíkur hroðbjóður sem hann er.
Annað sem er í fréttum að maður kíkir örvæntingafullur á heimabankann á 20 mínútna fresti og bíður eftir greiðsluseðli fyrir bílalán. Tímabundið mætti svo líta á að ég sé að verða stóriðjusinni og sé erlent fjármagn í hillingum. Mig langar til að taka út þessa timburmenn seinna þegar ég er farinn að vinna. Teygja mig í flöskuna og teyga ljúfan mjöðinn að morgni dags með þjóðinni. Það væri þá ekki í fyrsta skiptið.
Ef þið leggið saman túnfisksalat og áhyggjur af bílaláni í erlendri mynt þá sjáið þið að þetta jafnast út og ég get ekki kvartað. Enda enginn tími til þess út af þessari ritgerð minni. Langar að stimpla mig út með vísu sem Flosi Ólafsson samdi um Akureyri og allir hafa heyrt:
Frá Akureyri er um það bil
ekki neins að sakna.
En þar er fagurt þangað til
þorpsbúar vakna.
Góðar stundir

Ummæli
Varð bara að kvitta fyrir innlitið. Var í heimsókn hjá Sigrúnu og Dóra í gær.. Sigrún benti mér á þetta stórskemmtilega blogg þitt. Þetta er alveg að bjarga steindauðum og gráum morgni í vinnunni - er búin að hafa gaman að lesningunni hingað til og hlakka til að lesa meira.
"Þjónustupíkan þín fríð" Jóhanna