Póstur 103

Góðan daginn.

Set hér inn smá rullu til að halda þessu bloggi mínu á lífi. Ekki er nú mikið að frétta af okkur hér í Lundi en við höfum það gott. Ég og pabbi höfum farið tvisvar á gæs nú eftir jólin en aflabrögð hafa verið með lakara móti. Fyrsta morguninn fengum við eina kanadagæs inn á gerfigæsirnar og náðum henni. Annars hafa hóparnir bara hunsað okkur og ekki víst að við förum aftur í gæs. Nú er reyndar heiðskýrt hér í fyrsta skipti í manna minnum og einhverjar líkur á því að við setjumst út og bíðum villisvína í tunglsljósinu í kvöld. Ég læt að sjálfsögðu vita ef eitthvað gerist.

Að lokum vil ég fordæma Samskip og Eimskip sem eru skítafyrirtæki. Ætlaði að flytja bílinn inn með Samskip en hefði þurft að borga 85.000 krónur fyrir það. Ekkert dót mátti vera í bílnum þannig að ég hefði þurft að setja það á vörubretti. Eitt bretti með 2 ferðatöskum, golfsetti og pappakassa átti að kosta 30-40.000 kr. Ég ætla að skilja bílinn eftir í Danmörku hjá Ævari og fæ hann í febrúar eða mars. Með Norrænu kostar far fyrir bílinn og dótið 33.000 kr.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju með jólin og gleðilegt árið.

Það er eitt sem þú gætir athugað með bílinn, að fylla öll hólf af dópi og flytja hann með Eimskip heim. Þannig gætiru bara grætt á öllu saman. Sniðugt og gott.
Sjáumst næst
Halldór sagði…
Heyr heyr aldeilis að hann hinrik er að standa sig í lögreglunáminu.
Bjarni sagði…
Sælir kallar og gleðilegt árið. Já ég held að þetta sé góð hugmynd hjá Grikk. Hann verður örugglega Torrente okkar Mývetninga í framtíðinni. Byggir löggustöð í Vogum og selur dóp og landa
Nafnlaus sagði…
Ég ætla að biðja þig um að ata ekki fyrrum vinnuveitendur mína auri. Ég fordæmi þig

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap