Próftíð lokið

Jæja ekki þurfti ég að taka mörg próf hérna en nú er þeim lokið. Fór í þetta skriflega próf sem ég gat um í fyrri pistli og í gær fór ég í mitt fyrsta munnlega próf sem gæti einnig verið mitt síðasta próf á löngum og afar farsælum menntaferli. Það er ekki annað hægt að segja en að þetta hafi gengið vonum framar og ég get bara ekki þurrkað glottið af smettinu á mér. Enda kannski ekki nokkur ástæða til þess.

Nú tekur við vinna við smá ritgerðaskil og svo þarf maður að setjast yfir lokaritgerðina sem fyrst. Reikna því með að vera hér á hangsinu næstu daga og stefni að því að komast til pabba í kring um 20. des. Aðdáendur mínir á Íslandi koma til með að þurfa að bíða eftir að sjá mig þangað til 6. janúar. Ég mun setja nákvæmari dagsetningar hér inn síðar enda vill fólk væntanlega vera með töluverðan viðbúnað við komu mína. Ef einhver ætlar að færa mér eitthvað heimabakað út á völl þá vil ég minna á að ég er ekki mikið fyrir gráfíkjur í kökum. Á heimasmurðu vil ég ekki hafa tómata og ég kann afskaplega vel að meta brúnkökur og rjómapönnukökur. Kakó er ágætt í bland en kaffi verður að fylgja líka. Annars ættu fjölskyldur að hafa samband hvor við aðra og samræma þetta einhvern veginn svo ekki myndist of mikið kraðak við komu mína.

Í kvöld er mér boðið á jólahlaðborð af nokkrum vinum en það er flókið mál og þarfnast frekari útskýringa sem koma seinna. Hafið það gott börnin góð

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Batnandi menn lifa...
Hinir ekki.

Spilamann.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap