Próf í öðru landi
Jæja góðan daginn
Þá er maður að fara að þreyta frumraun sína í próftöku á erlendri grundu eftir svo sem tvo góða klukkutíma. Þetta verður víst svolítið öðruvísi en heima, kúlupennar, fjölrit og einhverjar lítilsháttar hliðranir á þessum hefðbundna próf- fasisma sem maður þekkir. Fyrir fólk á mínum aldri eru breytingar reyndar aldrei af hinu góða en ég mæti allavega og reyni að gera mitt besta. Ég var glaður að heyra það að yfirsetufólkið hér eru líka elli- búðingar eins og maður er vanur að hafa flaðrandi utan í sér í prófum heima. Hér eru þeir víst enn fleiri en heima og umkringja stofuna eins varðliðar konungs. Þeir koma til með að hafa róandi áhrif á mann og vonandi bíða þeir með að hrökkva upp af á meðan prófi stendur. Jæja ég læt ykkur vita ef þetta fer allt til helvítis.
Kveðja, Bjarni

Ummæli
Kveðja, Jens