Norge
Jæja þá er maður að hripa niður síðasta bloggið frá Noregi. Allavega að sinni því maður á jú aldrei að segja aldrei. Hef eitt síðustu dögum sveittur yfir ritgerðaskrifum og sennilega náð að skrifa einhvern þann alleiðinlegasta pappír sem litið hefur dagsins ljós síðan Davinci lykilinn var gefinn út. Nú er bara að rusla út úr herberginu og vona að Stasí verði ekki með leiðindi varðandi frágang og viðskilnað minn við þessa svítu. Ég næ nú sennilega ekki að yfirgefa svæðið í dag en fæ gistingu hjá Ragnari vini mínum í nótt og legg svo af stað í bítíð í fyrramálið. Förinni er að sjálfsögðu heitið til Lund þar sem ég mun eyða hátíð frelsarans við kirkjuheimsóknir og annað tengt minni sterku trú á Jesús Krist og eigið ágæti.
Jæja börnin góð, nú verð ég að fara að ganga frá í þessu blessaða drasli mínum. Það hefði verið við hæfi að gera upp þessa dvöl mína hér í ítarlegum pistli en það verður að bíða. Ég set eflaust inn einhverjar línur þegar ég er kominn niður úr.
Kveðja úr hrími og frosti, Bjarni
Ummæli
*Að njóta samvista með Bjarna sínum.