Besti annar í Jólum ever!!!!!

Sælt veri fólkið.

Þá er veiðivertíðin hafin þessi jólin og ekki laust við að það sé betra heldur en að liggja bara á meltunni. Ég og pabbi fórum og veiddum héra í félagi við 12 aðrar skyttur á skönskum ökrum í ekta jólaveðri. Rigning með köflum og súldarveður en við létum það að sjálfsögðu ekki á okkur fá slík karlmenni sem við feðgar erum. Þessar veiðar fara þannig fram að skyttum er stillt úr við akurkanntana og síðan ganga aðrar skyttur yfir akurinn og reka þannig blessuð nagdýrin á undan sér. Þegar manni er stillt upp er það kallað að vera á passi. Á fyrsta passinu mínu fékk ég ekki mikið af góðum færum en nóg var blessuðum héranum. Náði niður tveimur greyjum sem þurfti að sækja yfir á land nágrannans. Næst fékk ég að reka og búmmaði á eitt grey sem pabbi skaut svo þegar hann ætlaði að flýja þessar köldu jólakveðjur okkar. Þá fékk ég fínt pass og skaut þar 2 til viðbótar. Eftir það átti ég eitt skot eftir sem ég tróð í vitlaust hlaup og missti þannig möguleikana á þeim fimmta. Alls féllu 11 hérar í þessum atlögum okkar og að lokum var sötrað kaffi og étið brauð heima hjá Anders sem bauð til veiðanna.

Ég set inn myndir í albúm svo þið getið fengið að njóta þess að sjá hvað við erum snjallir og höfum það gott. Þið verðið reyndar að afsaka að ég nenni ekki að henda vondu myndunum úr þannig að einhverjar eru ekki svo góðar. Á morgun ætlum við að reyna við kanadagæsir og svo er einhver meiri veiði í bígerð. Guð blessi öll þessi dýr, skóga og akra. Drottinn gefi ykkur ánægjulegar stundir það sem eftir lifir hátíðar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap